Elísabet Gunnardóttir, betur þekkt sem Lísa á Daðastöðum - Valdir þættir úr Lísulífi
25.12.2009 17:53:01 / lisulius

Gleðileg jól og farsælt komandi ár

Það eru sjálfsagt allir löngu hættir að ramba inn á þessa síðu, enda hefur ekki verið mikið um dýrðir hér síðastliðið ár. Ég ætla nú samt að lauma einni allsherjar jólkveðju hérna inn, svona í ljósi þess að ég er hætt að skrifa jólakort.

Elsku vinir og vandamenn. Mínar allra bestu óskir um gleðilegt jólahald og farsælt komandi ár. Þakka liðin ár og ljúfar minningar í farteskinu.


Litla "fjölskyldan" mín að Mararbraut 21


Panda litla jólahundur varð 10 mánaða á aðfangadag

» 2 hafa sagt sína skoðun

13.11.2008 13:24:52 / lisulius

Horft um öxl

Markmið sumarsins voru háleit, en líklega óraunhæf í ljósi þess að einungis minnahluti þeirra komst í framkvæmd. Koma tímar, koma ráð!

Einhverju kom ég þó í verk fyrir utan daglegt amstur. Svo eitthvað sé nefnt...

·         Við Kiddi bróðir gengum um Fjörður, eins og fram kemur í færslunni hér á undan.

·         Ég reið upp í Hafursstaði í félgsskap hestamannafélagsins Feykis. Í framhaldi af því riðum ég, Kiddi bróðir og Óli bróðir upp í Laufskála og gistum þar yfir nótt. Þetta var frábærlega gaman og klárlega ein af betri minningum sumarsins :d.

·         Árleg hestaferð var farin úr Öxarfriði yfir í Þistilfjörð

·         Smalahundakeppni Íslands fór á Daðastöðum þar sem við Dreki urðum Íslandsmeistarar í styttri brautinni :haha:. Ekki seinna vænna en að monta sig aðeins af því ;)

·         Við Alli gerðum okkur ferð upp í Dimmuborgir, en þangað hafði ég aldrei komið áður. Ég get ekki sagt að ég hafi verið bergnumin, en það var þó gaman að koma þangað.

·         Stóra hármálið!! Fæst orð bera minnsta ábyrgð... en ef ykkur langar til að vita hvernig þið getið umbreytt tilltölulega vel hirtu dökku hári í gula tyggjóklessu er ég manneskjan sem þið skulið tala við :$.

·         Ég sagði upp starfi mínu hjá Norðurþingi. Sannarlega lærdómsrík tvö ár en starfvettvangurinn átti einhvern veginn aldrei við mig.

·         Mærudagar á Húsavík. Það var ótrúlega gott veður og notaleg stemmning í bænum. Kiddi kom á nýja mótorfáknum sínum yfir Reykjaheiði, Inga kom í heimsókn og við drukkum kakó og STRO...

Sumarið kvaddi síðan eins og lög gera ráð fyrir, ásamt öllum sínum fögru fyrirheitum og við tók ný árstíð með hefðbundunum haustverkum. Göngur og annað fjárstúss upp á hverja helgi, og rúmlega það. Dreki minn varð fyrir því óláni að tábrjóta sig, og það tók hann margar vikur að jafna sig.

Vetur er í garð genginn og ég kem sjálfri mér á óvart með að líka það ágætlega. Snjórinn er líka búinn að vera svo jólalegur undanfarið og gott ef ég er ekki farin að hlakka til jólanna sjálfra.

Ég hef það ekki lengra í bili.


» 5 hafa sagt sína skoðun

07.07.2008 13:54:56 / lisulius

Með nesti og nýja skó

Ég guggnaði á Landsmóti hestamanna. Við Kiddi bróðir fórum aftur á móti með nesti og nýja skó ásamt átta ágætum ferðafélögum og gengum um Fjörður á laugardaginn, eða hluta þeirra. Það er úr Hvalvatnsfirði í Þorgeirsfjörð. Þarna var blómleg byggð um 1900, en nú er svæðið allt í eyði. Sérlega skemmtileg gönguleið þar sem gengið er í fallegu umhverfi og víða má sjá ummerki um sambýli manns og náttúru. Við lögðum af stað í þokusúld, indælt gönguveður en skyggni afar takmarkað, en fengum síðan frábært útsýni og glampandi sólskin á bakaleiðinni. Að minnsta kosti nóg til þess að við systkinin roðnuðum aðeins á nefinu.

Skipulagning svæðisins er til fyrirmyndar, en ferðafélagið Fjörðungar: http://www.fjordungar.com, hafa staðið fyrir uppbyggingu svæðisins. Þarna eru kortlagðar gönguleiðir og gistaskálar fyrir þá sem vilja fara í lengir ferðir, öll eyðibýli eru merkt, eins er boðið upp á leiðsögn og ef ég tók rétt eftir er starfandi landvörður á svæðinu. Ég geri mér svo sem ekki alveg grein fyrir hvernig þetta er rekið en held að þetta sé eitthvað sem við gætum mögulega lært af. Sauðkindur, spakir fuglar, hestamenn og göngugarpar áttu að því er virtist ágætt sambýli þarna. Hundar voru samt útlægir þannig Dreki minn var til dæmdur til að verða eftir heima.

Myndir á næstu grösum.

» 1 hafa sagt sína skoðun

01.07.2008 10:16:19 / lisulius

Krassandi

Ekki mikil umferð á síðuna mína þessa dagana. Ég þarf líklega að fara að skrifa e-ð meira krassandi!!!

Mamma og pabbi eru á Spáni. Við systkinin og fleiri vandamenn gáfum pabba utanlandsferð í 6tugs afmælisgjöf og sendum mömmu með honum. Til stóð að ég yrði bústjóri í sveitinni á meðan ásamt Birki “litla” (sem fékk bílpróf síðasta föstudag), en Kiddi bróðir hafði það af mér þegar hann hætti við að fara til Hróarskeldu. Kann ég honum þakkir fyrir því ég hef í nógu að snúast í vinnunni.

Við Inga fórum með “Fjörulallana” í Ásbyrgi um helgina. Það var blautt en sálubætandi.

Reynir bróðir er fluttur til mín. Við erum smá saman að koma honum fyrir í stofunni uppi. Það er að verða töluvert heimilislegt hjá honum. Ég veit ekki hvort okkar er spenntara yfir nýja heimilinu …ég held reyndar að það sé ég. Í gær keypti ég dót í innbúið handa honum í Nytjamarkaðnum á Óseyri á Akureyri, sem er stórsniðug búð. Þar er hægt að fá fullt af ágætis húsgögnum á fínu verði.

Mig langar til að kíkja á Landsmót hesamanna um næstu helgi, en það er ekki alveg ákveðið. Langt og dýrt að fara.

Þessi færsla verður seint sögð “krassandi” en kannski næst ;)?

Sæl að sinni


» 2 hafa sagt sína skoðun

22.06.2008 19:19:39 / lisulius

Reynir útskrifaður

Reynir útskrifaðist með stúdentspróf frá MA 17. júní síðastliðinn. Ég er að vonum ferlega stolt af stráknum mínum. Hér má sjá nokkrar myndir:

http://lisulius.blogcentral.is/myndasafn/243259/

» 0 hafa sagt sína skoðun

26.05.2008 18:33:48 / lisulius

Sólbruni í sveitinni

Sauðburður er í fullum gangi, og allt sem honum fylgir. Það virðist ekki ætla að gera hret þetta vorið, 7-9-13. Raunar er veðrið óborganlega gott, og sem afleiðing af því er gróðurinn farinn að taka við sér. Er það töluvert fyrr en maður á að venjast. Pabbi er búinn að bíða eftir þessu vori síðan 1982, eða síðan við fluttum í sveitina.  

Ég eyddi bróðuparti gærdagsins í að "skoppa" um túnin á eftir lambfé og gáði ekki betur að mér en svo, að ég er eins og sólþurkaður tómatur í framan. Fyrstu sólardagar sumarsins geta verið varasamir. Ég hef oft fengið að kynnast því á eigin skinni. 

Að öðru leiti er fátt nýtt undir sólinni hér í sveitinni.

» 0 hafa sagt sína skoðun

21.04.2008 11:35:44 / lisulius

Fuglafár

Ég er komin heim frá Berlín :D. Takk, takk, ferðafélagar mínir, fyrir frábærar samverustundir! Myndir á næstu grösum.

Ég datt í lukkupottinn... Síðan ég kom heim hef ég séð tvær andartegundir sem ég hef aldrei séð áður. Andategundirnar sem um ræðir er annars vegar æðarkóngur sem ég sá svamla á Pollinum inni á Akureyri þann 9. apríl síðastliðinn, og hins vegar rauðhöfðaönd (þ.e. karlfuglinn, hef oft séð kelluna) sem ég sá í Bakkafjörunni hérna við Húsavík núna í gær. Fjöldinn deilir ef til vill ekki áhuga mínum á íslensku fuglaflórunnu, en ég er uppveðruð ;)

Hér má sjá þessar elskur:


Ég er alveg að komast í sumarskapið, enda veðrið búið að vera með besta móti undanfarna daga :haha:. Ég bíð spennt eftir sumarmánuðum og er búin að ákveða að vera hérna heima við og ferðast innansveitar í sumar.

» 0 hafa sagt sína skoðun

27.03.2008 11:03:32 / lisulius

"Ich bin ein Berliner"


Ég er ekki ennþá farin að geta skreytt mig með eyrnalokkum, þar sem það grefur í götunum, og kílóin sitja enn sem fastast :S (sbr. síðasta blog)

Ég fór á ístölt á Langanesinu einhverja helgina fyrir páska með Berglindi, Vigni og Bjarti litla. Það var ótrúlega vel heppnað. Vinsamlegt veður, góð þátttaka, frambærilegir hestar og gott skipulag.

Í þessari sömu ferð sóttu Helgi Árna og Atli mæðgurnar (meri og folald) mínar í Flögu. Þær eru í Hjarðarási núna, en Helgi var svo elskulegur að bjóðast til að sækja þær og aðstoða mig við tamninguna. Ég er því búin að vera tíður gestur þar á bæ undanfarið. Það stendur síðan til að fá pláss fyrir þær inni á Húsvík, þegar sú eldri er orðin reiðfær :d.

Ég eyddi páskunum að stærstum hluta á Daðastöðum. Málshátturinn í ár var: ,,Vegsemd vex með barni hverju” Hmmm…

Reynir bróðir ætlar að búa hjá mér á Húsavík í sumar. Hann er mjög líklega búinn að fá vinnu hjá Viðbót ehf. þegar hann klárar skólann í vor. Það verður gaman að hafa "litla" pjakkinn hjá mér.

Það er vetur á Íslandi en vor í Berlín. “Ich bin ein Berliner” JFK 8)


» 6 hafa sagt sína skoðun

29.02.2008 13:26:48 / lisulius

Í fréttum er þetta helst:

Ég hef fitnað um tvö mjög svo óvelkomin kíló síðan um jólin, þrátt fyrir fögur fyrirheit og nýju gönguskóna frá Bandaríkjunum :$.

Ég skrapp til Reykjavíkur í byrjun Febrúar, þar sem ég hitti vini og vandamenn. Takk fyrir síðast “alle sammen”!

Djamm í Reykjavík. Það er út af fyrir sig ekki fréttnæmt fyrir utan að þetta var í fyrsta skipti eftir að reykingarbannið tók gildi.

Ég er komin með göt í eyrun, þannig bráðum get ég farið að skreyta mig með ýmsum útgáfum af glitrandi dinglumdangli :d.

Þorrablót á Kópaskeri. Það var hin besta skemmtun (þrátt fyrir að hafa orðið fyrir barðinu á vel völdum brandörum á minn kostnað ;)), enda sveitungar mínir fádæma skemmtilegt fólk!

Ég fór inn á Akureyri um daginn og bauð yngri bræðrum mínum í bíó. John Rambo! Þetta er bara hin ágætasta mynd og jafnvel rúmlega það 8).

Ég fór í hestbak með Berglindi í gær á hana Skrítlu “mína”. Var þetta í fyrsta skipti síðan í göngunum síðasta haust, sem er ávísun á létta strengi næstu daga.

Ég er að fara til Berlín í byrjun apríl með Fjallalambsliðinu og ég hlakka mikið til! Það verður örugglega ótrúlega gaman :haha:.

Fleira er ekki í fréttum að sinni.
Kv. Lísulíus


» 3 hafa sagt sína skoðun

18.01.2008 10:23:36 / lisulius

Dadadadamm...

Það var ekki þverfótað fyrir hundum heima hjá mér um helgina. Milla kom inn á Húsavík á  föstudaginn í þeim tilgangi að láta ræna “Kol yngri” karlmennskunni. Hún og slöttólfarnir hennar tveir gistu síðan hjá mér yfir helgina. Ég sá aumur á hundunum í ljósi aðstæðna og leyfði þeim að gista inni í húsi. Annars verða ferfættir gestir yfirleitt að gera sér bílskúrinn að góðu.

 

Birkir bróðir kom til mín á laugardaginn og ég aðstoðaði hann við að undirbúa sig undir tvöfalt stærðfræðipróf. Þessi áfangi er búinn að vera okkur báðum kvalræði í allan vetur. Þeir segja að allt sé gott sem endi vel, svo vonandi er prófið staðið og þessi áfangi frá.

 

Ég fékk ótrúlega skemmtilegan pakka, frá mér til mín, með póstinum fyrir helgi! Við Berglind pöntuðum “dót” frá USA og erum búnar að bíða spenntar, eins og lítil börn eftir jólasveininum, síðan fyrir jól. Í pakkanum voru ferlega fínir gönguskór, þannig nú er ég búin að leggja Skodanum og hleyp eins og fjallageit um fjöll og firnindi (… eða silast áfram eins og belja á svelli eftir strætum bæjarins). Enda ekkert nema skóleysið sem hefur haldið aftur af annars óbilandi hreyfiþörf minni hingað til ;).

 

Með fögrum fyrirheitum um sérlega heilsusamlegt líferni það sem eftir lifir vetrar.

 

Lísa


» 6 hafa sagt sína skoðun

09.01.2008 12:00:01 / lisulius

"Nú árið er liðið í aldanna skaut og aldrei það kemur til baka"

Komið þið sæl krúttin mín

 

Ég vona að þið séuð bæði feit og falleg eftir hátíðarnar. Það er ég að minnsta kosti :$. Ég átti sykursæt jól í faðmi fjölskyldunnar. Milla var hjá okkur og það var reglulega notalegt að hafa hana (knús, knús). Um áramótin var ég hjá "hinni fjölskyldunni minni" ;), Berglindi, Vigni og Bjarti litla, en hjá þeim hef ég átt mitt annað heimili síðan ég flutti á Húsavík.

 

Það var ekkert áramótaball á Víkinni, en við kíktum aðeins á barinn í tilefni dagsins, sem var ljómandi skemmtilegt. Ég rakst á sveitunga mína, Elvar Má, Óla Jón, Ómar og Sigurbjörn, á barnum. Þeir komu mér síðan á óvart með síðnæturheimsókn, þar sem Óli og Elvar fóru á kostum í eldhúsinu á Mararbrautinni. Gaman að því :D. Það vakti samt ekki alveg jafn mikla lukku í þynnkunni á nýársdag þegar ég sá allt uppvaskið sem beið mín ;).

 

Undanfarið hef ég verið að dútla við að koma mér fyrir í húsinu mínu. Neðri hæðin er orðin ansi heimilisleg, en töluvert vantar upp á að hægt sé að segja hið sama um efri hæðina. Ég er samt búin að útbúa þar gestaherbergi sem ég er gasalega stolt af. Fram til þessa hef ég bara getað boðið gestum upp á dýnur, sófann …já, eða að sofa upp í. 

 

Hversdagsleikinn var fyrirkvíðanlegur, en núna þegar fyrsta vinnuvikan er liðin og átta dagar liðnir af nýju ári, leggst framhaldið bara nokkuð vel í mig :D

 

Megi líðandi ár verða ykkur ánægjulegt!

 

Nýjar myndir:

http://www.blog.central.is/lisulius?page=albums&action=showalbum&id=84292


» 1 hafa sagt sína skoðun

23.11.2007 12:24:59 / lisulius

Myndir frá Svíþjóð

Nokkrar myndir frá Svíþjóð - sjá undir myndir eða:

http://www.blog.central.is/lisulius?page=albums&action=showalbum&id=78395


» 0 hafa sagt sína skoðun

09.11.2007 13:16:51 / lisulius

Í kröppum dansi

Nei, ég er ekki ennþá í Svíþjóð!  

 

Ferðin til Kiruna var frábær. Ég kom við í Finnlandi, gisti í bjálkakofa í skóginum, baðaði mig með ausu, bala og vatni hituðu á hlóðum, steig í elgsskít og fékk fullt af mýbiti 8). Útsýnið af Kiruna fjalli var óviðjafnanlegt.

 

Mér stóð til boða að fara á dansleik skammt frá Piteå eitt kvöldið. Ég hélt ég væri fær í flestan sjó eftir ófáa danstíma hjá Önnu Breiðfjörð og enn fleiri sveitaröll. Þegar ég steig inn í salinn sé ég hvar pör í innilegum faðmlögum liðu um salinn.” Æi, þetta er svona kærustuparaball” hugsaði ég með mér. Síðan er skipt um lag og makaskipti áttu sér stað. Konur og menn gripu næsta dansfélaga í fangið af ekki minni innileik (…sleik, það mátti varla á milli sjá ) en fyrr. “Nú já… svona dansa menn þá hér?”. Áður en ég vissi af hafði sænskur herramaður gripið mig í fangið, þrýst mér þétt upp að sveittum líkama sínum, rekið nefið í hálskotið á mér og löppina í klofið 8|. Í þessari annarlegu stellingu reyndi hann síðan að drösla mér um gólfið í óskiljanlegum dansi.  Þannig gekk ég á milli herra, dans eftir dans, þar til kom að dömufríi. Mamma segir að maður neiti manni aldrei um dans! …og það var bara selt kaffi á barnum :$.

 

Eftir að námskeiðinu lauk heimsótti ég Jonas Blomqvist og dvaldi hjá honum í góðu yfirlæti í nokkra daga. Hann kynnti mig fyrir landi og fólki í Boden og nágrenni. Svona eftir á að hyggja voru vatnakrabbaveiðarnar sennilega það eftirminnilegasta. Mér var ekki treyst fyrir flóknara veiðarfæri en háfi, annars hefðum við örugglega farið á elgsveiðar ;). Ég fékk samt að smakka elgssteik sem pabbi Jonasar hafði veitt. Eldunartími: Fimm tímar! Langur tími í augum þeirra sem eru vanir að hita matinn sinn upp í örbylgjunni... en biðin var þess virði. Það var ekki laust við að Svíþjóð væri kvödd með ákveðnum trega að þessu sinni.

 

Þegar heim kom tók ég til við að koma hestunum í form fyrir göngur. Ég reið í fyrsta skipti yfir Sléttuna sem var mjög gaman, en við Kiddi bróðir og Helgi bóndi riðum í Sveinungsvík. Ég fór líka í fyrstu göngurnar mínar um Sléttuna í haust. Sléttungar óskuðu eftir tveimur ganganmönnum frá Núpssveitungum þetta árið og fékk ég það hlutskipti að vera annar þeirra. Reyndar var ég hvorki heill né hálfur smali sökum þekkingarleysis á staðháttum. Ég verð vonandi betri næst …batnandi smölum er best að lifa. Það kom mér á óvart hvað Sléttan er erfitt smalaland, en það er engu að síður alltaf gaman að fara um nýjar slóðir :D.

 

Annars er það helst í fréttum að ég er orðinn virðulegur húseigandi. Eins og margur veit festi ég kaup á húsi á Húsavík fyrir nokkru. Þetta var heilmikil ákvörðun sem kostaði fjölda andvökunótta, en þetta er sem sagt niðurstaðan. Ég (og Dreki minn) flutti í húsið fyrir tæpum þremur vikum með hjálp góðra vina. Þetta leggst bara nokkuð vel í mig. Hér er ljómandi ágætt að vera og stutt í sveitina mína.

 

Verið ávallt velkomin í heimsókn! :haha:


» 6 hafa sagt sína skoðun

04.08.2007 09:08:02 / lisulius

Saenskunam i Framnäs

Saelt veri folkid.

 

Eg sit her i tölvuverinu i Framnäs og furda mig a thvi ad thad se kominn agust. Hvad hefur a daga mina drifid undanfarna tvo manudi? Party i Akurgerdi 3 (mer var ekki bodid) ;), grill og öl (afmaeli) hja Thomasi i Tungu, hestamannamot i Asbyrgi, vika sem hundahirdir og serlegur eftirlitsmadur i sveitinni, fjordungsmot Austurlands Stekkholma, einhverjar ferdir inn a Husavik, tveggja vikna timafrek en anaegjuleg samskipti vid sjalfbodalidana fra SEEDS, og sjalfsagt margt fleira sem eg minnist ekki, eda ekki tjair ad nefna.

 

Sem stendur er eg stödd i Framnäs sem tilheyrir Piteå kommun i Svithjod. Tilgangur ferdarinnar er ad nema saensku. Her i Framnes er 35 ara hefd fyrir saenskunamskeidum sem Finnar og Islendingar hafa verid duglegir ad saekja i gegnum tidina. Ekki var oalgengt ad namskeidid saektu 50 til 70 manns thegar best let, en a undanförnum arum hefur fjöldinn verid um 25-30 manns. Sambaerileg islenskunamskeid eru sidan haldin a Islandi sem hafa verid vel sott fram til thessa. Sitaslidin ar hefur reynst si erfidara ad fjarmagna thetta norraena samstarf sem veldur thvi ad faerri saekja namskeidin thar sem thau verda dyrari med hverju arinu. I ar eru bara tveir Islandingar. Thess fyrir utan er eg i felagsskap ölelskandi eldri borgara fra Russlandi og Finnlandi. Reyndar er Alda, hinn ”Islendingurinn”, Vestur-Islendingur fra Kanada. En langamma hennar og langafi i moduraettina fluttu til Manitoba i Kanada a 19. öld.

 

Mer finnst eg hafa laert otruleg mikid sidan eg kom. A.m.k. hvad skilning vardar. Thad gengur tho enn talsvert brösulega ad mynda eigin setningar. Eg blanda saman islensku, dönsku, saensku og ensku, med fagaetum hreim sem eg tel mer tru um ad se saenskur.  Fyrstu dagana atti eg alveg nog med ad reyna ad rata um vistaverurnar. Husid sem eg by i, og er jafnframt kennsluhusnaedid, er lydhaskoli  a veturna, en rekid sem farfuglaheimili a sumrin. Husid er samansett ur otal einingum. Vidbygging, vid vidbyggingu med rangala hingad og thangad. Annan daginn var eg skyndilega komin inn a skrifstofu skolastjora an thess ad hafa thangad nokkurt erindi :$.

 

Framnes er mitt a milli thess ad vera sveit og thettbyli. Her allt i kring eru litlir og storir bugardar. Thegar eg aetladi ad stytta mer leid a göngu minni til naesta baejar (Öjeby) um daginn matti eg prila yfir nokkrar girdingar, kindur og kyr a leidinni.  Eg helt a timabili ad kindurnar aetluda ad gera aras a mig, en tha vildu thaer bara lata klappa ser :haha:.

 

Um helgina er buid ad bjoda mer og Öldu til Kiruna i Lapplandi sem verdur eflaust frodlegt og otrulega skemmtilegt.

 

Knus og kossar fra Svithjod :D


» 8 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 5