Ég er ekki ennþá farin að geta skreytt mig með eyrnalokkum, þar sem það grefur í götunum, og kílóin sitja enn sem fastast
(sbr. síðasta blog)
Ég fór á ístölt á Langanesinu einhverja helgina fyrir páska með Berglindi, Vigni og Bjarti litla. Það var ótrúlega vel heppnað. Vinsamlegt veður, góð þátttaka, frambærilegir hestar og gott skipulag.
Í þessari sömu ferð sóttu Helgi Árna og Atli mæðgurnar (meri og folald) mínar í Flögu. Þær eru í Hjarðarási núna, en Helgi var svo elskulegur að bjóðast til að sækja þær og aðstoða mig við tamninguna. Ég er því búin að vera tíður gestur þar á bæ undanfarið. Það stendur síðan til að fá pláss fyrir þær inni á Húsvík, þegar sú eldri er orðin reiðfær
.
Ég eyddi páskunum að stærstum hluta á Daðastöðum. Málshátturinn í ár var: ,,Vegsemd vex með barni hverju” Hmmm…
Reynir bróðir ætlar að búa hjá mér á Húsavík í sumar. Hann er mjög líklega búinn að fá vinnu hjá Viðbót ehf. þegar hann klárar skólann í vor. Það verður gaman að hafa "litla" pjakkinn hjá mér.
Það er vetur á Íslandi en vor í Berlín. “Ich bin ein Berliner” JFK 