Markmið sumarsins voru háleit, en líklega óraunhæf í ljósi þess að einungis minnahluti þeirra komst í framkvæmd. Koma tímar, koma ráð!
Einhverju kom ég þó í verk fyrir utan daglegt amstur. Svo eitthvað sé nefnt...
· Við Kiddi bróðir gengum um Fjörður, eins og fram kemur í færslunni hér á undan. · Ég reið upp í Hafursstaði í félgsskap hestamannafélagsins Feykis. Í framhaldi af því riðum ég, Kiddi bróðir og Óli bróðir upp í Laufskála og gistum þar yfir nótt. Þetta var frábærlega gaman og klárlega ein af betri minningum sumarsins
. · Árleg hestaferð var farin úr Öxarfriði yfir í Þistilfjörð · Smalahundakeppni Íslands fór á Daðastöðum þar sem við Dreki urðum Íslandsmeistarar í styttri brautinni
. Ekki seinna vænna en að monta sig aðeins af því
· Við Alli gerðum okkur ferð upp í Dimmuborgir, en þangað hafði ég aldrei komið áður. Ég get ekki sagt að ég hafi verið bergnumin, en það var þó gaman að koma þangað. · Stóra hármálið!! Fæst orð bera minnsta ábyrgð... en ef ykkur langar til að vita hvernig þið getið umbreytt tilltölulega vel hirtu dökku hári í gula tyggjóklessu er ég manneskjan sem þið skulið tala við
. · Ég sagði upp starfi mínu hjá Norðurþingi. Sannarlega lærdómsrík tvö ár en starfvettvangurinn átti einhvern veginn aldrei við mig. · Mærudagar á Húsavík. Það var ótrúlega gott veður og notaleg stemmning í bænum. Kiddi kom á nýja mótorfáknum sínum yfir Reykjaheiði, Inga kom í heimsókn og við drukkum kakó og STRO... Sumarið kvaddi síðan eins og lög gera ráð fyrir, ásamt öllum sínum fögru fyrirheitum og við tók ný árstíð með hefðbundunum haustverkum. Göngur og annað fjárstúss upp á hverja helgi, og rúmlega það. Dreki minn varð fyrir því óláni að tábrjóta sig, og það tók hann margar vikur að jafna sig.
Vetur er í garð genginn og ég kem sjálfri mér á óvart með að líka það ágætlega. Snjórinn er líka búinn að vera svo jólalegur undanfarið og gott ef ég er ekki farin að hlakka til jólanna sjálfra.
Ég hef það ekki lengra í bili.